Icon fyrir framan bloggfærslu12 kg á 12 mánuðum

Kolvetni

Thursday 02. September 2010 kl: 09:49

Flókin kolvetni Kolvetni, Kolvetni, Kolvetni, Kolvetni...


  • Við þurfum á þeim að halda af því að þau eru góður orkugjafi fyrir líkamsstarfssemina.

  • Heilinn okkar þarf meira segja á þeim að halda þar sem þau eru mjög mikilvægur orkugjafi fyrir hann.

  • Við finnum Kolvetni í ávöxtum, grænmeti, baunum, mjólkurvörum, sykri, hunangi og fl.

  • Líkaminn breytir kolvetnunum í glúkósa sem hann notar svo sem orkugjafa, en ef við borðum of mikið af þeim þá breytist glúkósinn í fitu *hrmp*...



Einföld kolvetni - Flókin Kolvetni - Tormelt kolvetni

Einföld kolvetni eru auðmeltanleg, breytast þar af leiðandi fyrr í orku og rannsóknir sýna að þau hækka blóðsykurinn hratt og auka matarlyst.

Flókin kolvetni meltast hægar og hækka blóðsykurinn þar af leiðandi hægar. Í flóknum kolvetnum eru vítamín, steinefni og trefjar sem stuðla að bættri heilsu. Þau hjálpa okkur að halda matarlystinni í skefjum og við nýtum orkuna betur og þar af leiðandi breytum við ekki orkunni í fitu (a.m.k ekki jafn hratt).

Tormelt kolvetni eru einnig kölluð trefjar og er ekki orkugjafi en skipta miklu máli fyrir heilsuna okkar.

Sykur síróp, hunang, nammi, sulta, hlaup, sætir gosdrykkir innihalda einföld kolvetni og nánast enga næringu og ættum við þar af leiðandi að forðast þessar vörur.

Ávextir innihalda flest öll einföld kolvetni en á móti mikið af vítamínum, steinefnum, trefjum og vatni sem gera ávextina góða fyrir okkur.

Grænmeti innihalda bæði flókin og einföld kolvetni með vítamínum, steinefnum og vatni og þess vegna er grænmeti svona súper dúper holt.

Baunir innihalda flókin kolvetni með vítamínum, steinefnum og öðrum næringarefnum

Mjólkurvörur innihalda einföld kolvetni með próteini, kalki og öðrum næringarefnum og er mikilvægt fyrir heilsuna okkar. Við þurfum bara að velja fituminni mjólkurvörur.

Kornvörur innihalda flókin kolvetni með vítamínum, trefjum, steinefnum og próteini og eru góð fyrir meltinguna okkar.

Eins og þið sjáið þá eru öll einföld kolvetni ekki óholl og eru hreinlega nauðsynleg fyrir heilsuna okkar, þannig að þegar því er slengt fram að við eigum að borða flókin kolvetni ekki einföld, þá er það ekki eins einfalt og það hljómar og getur verið villandi.

Leið og einföld kolvetni eru komin með næringarefni og tefjar, þá breytast lögmálin!

Kolvetni er ekki óvinur okkar við þurfum bara að velja að borða rétt kolvetni það gerum við með einföldum reglum.

1. Borða grænmeti og ávexti á hverjum degi
2. Borða gróft brauð, gróft pasta, brún hrísgrjón
3. Borða fituminni mjólkurvörur
4. Forðast hvítt hveiti, hvít hrísgrjón, djúpsteiktan mat
5. Borða kökur og bakkelsi algjörlega spari ásamt sykur, hunang, síróp, sultu og sykurdrykki. (Það er óraunhæft að segja EKKI borða kökur....)


Ef ég fer með rangt mál endilega leiðréttið mig eða komið með fróðleg innlegg Broskall

Hefur þú eitthvað að segja?  (2 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: besta mamma,  Haukur Kristinsson,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluHlaupablogg

Fyrsti í Ironman

Wednesday 01. September 2010 kl: 22:12

Eitthvað varð lítið úr Ironman í dag! Þegar ég kom heim var búið að SKERA á dekkið á hjólinu, þegar ég var á leiðinni í sund hringdi systir mín í mig og dobblaði mig út... svo var saumó og nú er klukkan rúmlega 10!

En! Fall er fararheill!! Á morgun verður hlaupið!



Hefur þú eitthvað að segja?  (1 hefur tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Margrét Th.,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluHlaupablogg

Á leið yfir marklínuna

Wednesday 01. September 2010 kl: 13:36

Ég fann þessa mynd á Netinu áðan og gat ekki annað en keypt hana um hæl! Er meira segja að pæla í að prenta hana bara út Broskall

Reykjavíkurmaraþon



Hefur þú eitthvað að segja?  (8 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: barbietec,  besta mamma,  Bogga,  Fresinius,  Linda,  Rakel,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærslu12 kg á 12 mánuðum

Uppgjör Ágúst

Tuesday 31. August 2010 kl: 16:16

Þá er komið að uppgjöri Ágústsmánaðar.

Ég er þyngri en ég var 1. jan eða 1.5 kg búin að vera fara upp og niður um 2 kg fyrstu átta mánuði ársins, þá í kringum ákveðna tölu, en léttari en um síðustu mánaðarmót

Það eru kostir og gallar við það...

Kostir
1. Ég er greinilega búin að finna leið til að standa í stað
2. Læknar hafa sagt við mig að það sé skynsamlegt eftir að hafa létt sig svona mikið eins og ég er búi að vera gera að vera í einhvern tíma í jafnvægi.
3. Ég passa í fötin mín Broskall

Gallar
1. Ég er ekki að ná markmiði mínu fyrir 1 jan 2011
2. Ég svekki mig á því að mig langar að léttast um 12 kg en tekst það ekki
3. Léttingsferðalagið mitt er þar af leiðandi lengra og það getur verið erfitt að vera alltaf að hugsa um þetta. En ég veit svo sem að ég mun alltaf þurfa að hugsa um þetta, þannig að á ég ekki bara að fagna því að ég er ekki þyngjast, þá get ég alltaf haldið áfram að léttast í staðinn fyrir að vera byrja alltaf upp á nýtt.

Óháð tölu á vikt (sem ég elska í augnablikinu, þ.e.a.s viktin *blikkblikk*) þá er ég mjög sátt við afrek mín (ef afrek má kalla) í hreyfingu. Hjóla 110 km á einum degi, vera í öðru sæti í hjólað í vinnuna í vinnunni minni, hjóla mest allra kvenna í skýrr og hlaupa, og fá medalíu fyrir hlaupaafrek. Einnig hlaupa heilt hálft maraþon (hihi fyndið að orða þetta svona) og taka þátt í hlaupamótum eins oft og ég get. Þannig að ég er ekki búin að sitja á rassgatinu og gera ekkert þetta árið.

I know... sama pælingin alltaf hreint, afsökun, réttlæting eða hvað sem þetta kallast þá ætla ég að velja að vera ánægð með árangurinn en ekki svekkt, pirruð og leið. Ég er búin að gera fullt á þessu ári varðandi heilsuna og ég má alveg eigna mér það! hihiih...

Annars var samtalan á hlaup.com 92 km og æfingatíminn 13:12 kltst en ég er búin að finna það út að ef samtalan er í kringum 100 km á hlaup.com þá get ég verið passasöm í matarræðinu, leyfa mér ótrúlega mikið en samt standa í stað... WHOWHO.. ég læri allavegana eitthvað á þessu "Standa í stað" dæmi.

Annars minni ég á Járnkallinn góða en við erum orðnar 14 held ég sem ætlum að vera saman í þessu! STUÐ!!!!

Hefur þú eitthvað að segja?  (9 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Angua,  barbietec,  besta mamma,  Elsa,  Gunnhildur,  kolla tjörva,  Kristrún,  Ókunn,  vala rós,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluÁtaksblogg

Mánudagsmatur

Monday 30. August 2010 kl: 21:01

Morgumatur: Hafragrautur með jarðarberjum + kaffi + mjólk
Hádegismatur: Kjúklingasúpa (of lítið)
Síðdegishressing (í vinnunni og svo heima): Tekex með osti + smjöri + kaffi + mjólk + banani + froosh
Kvöldmatur: Heimagerð spelt pizza með pepperóní, ferskt grænmeti með jarðarberjum + vínberjum, smá feta ostur.

Hefur þú eitthvað að segja?  (Enginn hefur sagt orð) Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluÁtaksblogg

Viktin mín

Monday 30. August 2010 kl: 17:11

Fallega viktin mín Ég lét slag standa og keypti mér viktina. Búin að vera hugsa um hana síðan á fimmtudaginn, lesa mér til um hana, spyrjast fyrir hvort hún virki og fl. og hef bara fengið góð viðbrögð frá bæði fólki sem á hana og review sem ég hef lesið.

Einn lýsti henni svona "Núna finnst mér ég vera spila tölvuleik þegar ég vikta mig" ekki er það amalegt fyrir nördinn Broskall

Ég er ekki búin að prófa hana, né tengja hana við tölvuna, en þegar litli stubburinn sofnar þá ætla ég að fara leika mér Broskall

Sem sagt.. ég mun stíga á viktina, hún loggar sig inn á vefsíðu og sendir þyngdar-, BMI og fituprósentu upplýsingar yfir. Svo get ég skoðað þetta allt saman á línuritum, gert samanburði milli mánaða og fleira. Einnig get ég downloadað application á iPhone-inn minn og séð progressinn minn þar Broskall já og hún "þekkir" 8 aðila... FJÖR!

Ekki veit ég hvort ég muni léttast við það eitt að eiga þessa vikt, en ég hef a.m.k aldrei verið eins jákvæð í garð viktar áður hehehehe Broskall

Læt ykkur vita hvernig fyrsta viktunin gengur Broskall

Hefur þú eitthvað að segja?  (1 hefur tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Bogga,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluÁtaksblogg

Brauðdagur

Sunday 29. August 2010 kl: 22:19

Morgunmatur: Rúnstykki með eggi + osti + skinku + kaffi með nýmjólk
Hádegismatur: Rúnstykki með osti + kaffisopi með nýmjólk
Eftirmiðdagskaffi: 1/2 rúnstykki með osti + smjöri + Appelsínuafi + vínber
Kvöldmatur: Kjúklingur + fersk grænmeti + ofnbakað grænmeti + mangó + vínber + sósa + 2 litlar kartöflur

Hefur þú eitthvað að segja?  (Enginn hefur sagt orð) Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærslu12 kg á 12 mánuðum

Vinna sykurpúkann

Sunday 29. August 2010 kl: 17:48

Sykurgaur Ég var að lesa um hvernig maður ætti að stoppa sig af í "Sugar Cravings"... stóð mig ekki vel í gær, eða a.m.k þetta þarna með snúðinn *hrmp*...

Búin að komast að því að það er ekki til nein læknin *sigh* en það er hægt að fara eftir ákveðnum grundvallaratriðum sem hjálpa manni.

1. Finna eitthvað annað í staðinn Mig langar alltaf í eitthvað sætt þegar ég er búin að borða kvöldmat eða góðan mat. Það hefur hjálpað mér að vera búin að ákveða eftirréttinn áður en ég borða matinn og hafa hann hreinlega tilbúinn, þannig að þegar sykurpúkinn vaknar, þá get ég barist við hann með hollum eftirrétt.

2. Lifa þörfina af Úff það getur verið erfitt, en það er nú þannig að þörfin í sykurinn fer yfirleitt á endanum, þannig að best er að byrja á því að bíða í smá stund og athuga hvað gerist.

3. Setja sér dagleg markmið og verðlauna þig í lok dagsins Það er einmitt vandamálið sem ég er að slást við. Mér finnst ekkert mál að setja mér markmið á virkum dögum, en ég er enganvegin nógu dugleg um helgar, þá leyfi ég hlutunum bara að fljóta og það er þá sem ég "fell".

4. Finndu einhvern með þér að berjast við sykurpúkann Makinn eða börnin, fáðu þau með þér í liðið á móti sykurpúkanum! Það virkar!

4. Gerðu umhverfið þannig að það styður þig Ef þú ert vön/vanur að fara í sjálfsalann í vinnunni, ekki koma með klink í vinnuna. Ef þú kaupir þér nammi þegar þú tekur bensín, farðu á sjálfsala þar sem eru engar sjoppur. Breyttu umhverfinu þér í hag!

Þetta er alveg hægt! Tekur bara smá tíma. Þarft ekki að gera allt í einu.. en hafðu þetta a.m.k bak við eyrað svona til að byrja með Broskall

Hefur þú eitthvað að segja?  (2 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Angua,  Trítla,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluÁtaksblogg

Sukk dagur

Sunday 29. August 2010 kl: 09:49

Þetta borðaði ég í gær, en ég kom svo seint heim að ég náði ekki að skrifa um át gærdagsins í gær Broskall
Morgunmatur: 1/2 beygla með léttum rjómaosti + osti + kaffi með nýmjólk
Millikaffi: vínber + kaffi með nýmjólk
Hádegismatur: 1 rúnstykki með osti og smá smjöri + 1 snúður (æjæjæj)
Kvöldmatur: Sjúklega góður saltfiskur með sjúklega góðu sallati (var í matarboði) + smá feta + sjúklega góð súkkulaðikaka með sjúklega góðri karamellusósu + hvítt


Hefur þú eitthvað að segja?  (5 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: barbietec,  Steina,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluÁtaksblogg

Pítu-sósu, kjöt og brauð uppskrift

Saturday 28. August 2010 kl: 16:03

Uppskrift að pítubrauði:
3 dl volgt vatn
1 pk þurrger
1 tsk salt
1 tsk sykur
ca. 500 gr hveiti

Deiginu hnoðað saman og látið lyfta sér í ca 1 klst. Þá er deigið hnoðað aftur og skipt í 6 parta. Mótað í ílangar kúlur og látið hefast aftur í ca 15 mín.
Bakað í mjög heitum ofni 250°C í ca 7 mín eða þar til brauðið hefur náð fallegum bökunartón!

Uppskrift af hakkinu
Þegar ég geri pítur þá kaupi ég alltaf hakk og krydda það t.d með Taco kryddi, eða uppáhaldskryddinu mínu hverju sinni, tja eða bara blanda af einhverju og blanda því saman við hakkið áður en ég móta pítuna út úr því. Þegar ég er búin að blanda kryddinu saman við hakkið móta ég kúlur sem ég flet svo út og steiki á pönnu.

Uppskrift að Létt-pítusósu (fyrir 2-3 sem meðlæti):
1 dós hreint jógúrt
2 msk létt-majónes
1 marið hvítlauksrif
Smá steinselja fersk eða þurrkuð
Smá graslaukur ferskur eða þurrkaður
1 tsk sojasósa
Chili pipar eftir smekk

Helltu jógúrti í kaffi filter og láttu renna af henni í klukkustund þá verður hún þykkari (ekki nauðsynlegt). Bættu síðan 1 tsk af hunangi eða hlynsírópi út í ásamt lauksalti eða laukdufti og 1 tsk af Oreganó. Einnig er gott að bæta smá sítrónusafa út í . Blandið öllu saman og kælið í klukkustund áður en sósan er borin fram. Voila!

Mín útgáfa af sósunni:
1 dós sýrður rjómi
2 msk létt-majónes
1 maukað hvítlauksrif
Smá steinselja fersk
Smá graslaukur ferskur
Ferskur Chili eftir smekk maukaður
1 tsk sojasósa

Hrærði bara öllu saman og át *namm*. Ég setti svo bara afganginn af ferska graslauknum, steinseljunni og Chili piparnum inn í frysti, kemur í ljós hvort það eyðileggist.

Hefur þú eitthvað að segja?  (1 hefur tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Ingibjörg,   Bookmark and Share


Viltu lesa meira blogg?