Sjónvarpsgláp
Monday 08. February 2010 kl: 21:06
Um daginn las ég færslu hjá bloggkvinnu sem var að gera lítið úr stelpu sem var í ræktinni að horfa á sjónvarpsefni á meðan... talaði um að það væri ekki hvetjandi að horfa á tv á meðan maður væri að æfa.. þá væri ekki hægt að TAKA ALMENNILEGA Á ÞVÍ!...

Ég viðurkenni það nú alveg að sennilega tekur maður meira einbeittara á því að hugsa eingöngu um æfinguna í stað þess að flissa yfir sjónvarpsþætti... en þar sem við kannski vitum ekki alveg væntingar og markmið fólks svona fyrirfram þá er það ekki okkar að dæma.. en jæja..

Í kvöld fór ég á brettið.. ætlaði að taka rólegt 40 mín hlaup.. eftir 10 mín fann ég að ég var í ENGU stuði og fór að tala mig til að hlaupa bara í 20... Ég var með kveikt á TV.. einhver spennuþáttur sem ég hafði ekki séð áður...

Ég skokkaði rólega.. alveg að tala mig út úr hlaupinu þegar akkúrat þegar fór að slefa í 20 mínúturnar (og ég að fara hætta að hlaupa) kom þetta þvílíka hasaratriði..

Ég boxaði með þættinum (var ein heim) og kíldi helvítis kallinn í tætlur með sjónvarpshetjunni, rústaði henni að sjálfsögðu.. lá steinflöt eftir alla hnefaleikataktana mína...

Ég leit svo á klukkuna þegar kallinn steinlá.. og var hún orðin 22 mín..humm.. "ó well" hugsaði ég "ég hleyp í 30 mín"...

Tæpum 10 mín seinna.. þegar var að slefa í 30 mín., haldiði ekki að komi annað spennuatriðið..

Ég upp með hendurnar.. tilbúin í slaginn.. barði kallinn í tætlur og stóð uppi sem sigurvegarinn...

Aftur hafði það sama gerst.. tíminn kominn yfir 30 mín og ég hugsaði "ó well ég hleyp í 40 mín"...

Sjónvarpið getur sko alveg verið hvetjandi! Lét mig hlaupa rúma tæpa 4.5 km! og í 40 mín!....

Svo rústaði ég líka tveimur fílefldum köllum í leiðinni.. ekki var það verra Broskall

Bookmark and Share
Monday 08 February 2010 kl: 23:22
Nafn:   
Erna Magnúsdóttir
Tjáningin:  Ánægð meððig að rústa þessu svona!

Já, það voru margir sem misskildu þessa færslu hjá Röggu, en ef þú skoðar færsluna betur og svo athugasemdirnar þá sérðu hvað hún meinar.

Það er allt í lagi að horfa á sjónvarpið á meðan maður er í jafnri brennslu (ég persónulega geri það ekki því ég tek minna á en ef ég er að einbeita mér að æfingunni, og, það eru rannsóknir sem sýna að fólk tekur minna á!) en það sem Ragga átti við var að manneskjan var að horfa á Friends með spilarann á maganum á meðan hún var að gera magaæfingar. S.s. örugglega bara betra að horfa bara á Friends og gera svo einn tíunda af þeim magaæfingum sem hún gerði, en gera þær vel.....



Tuesday 09 February 2010 kl: 09:07
Nafn:   
Jóna Lind
Heimasíða:   http://www.jonalindk.bloggar.is
Tjáningin:  Ég held að það skipti máli hvaða æfingar er verið að gera...eins og í þínu tilfelli...úpps bara allt í einu komin 4,5 km og þú sem varst að gefast upp í 2 km


Tuesday 09 February 2010 kl: 12:15
Nafn:   
barbietec
Heimasíða:   http://www.barbietec.com
Tjáningin:  Já ef til vill misskildi maður færsluna.. en við vorum nokkur, þannig að kannski var hún ekki alveg nógu skýr Broskall

Ég tók nú samt magaæfingar og uppmeðrassinn æfingar líka og fann vel fyrir þeim, þrátt fyrir flissið fyrir framan sjónvarpið Broskall

Bæta við athugasemdum   
Nafn: - Verður að vera útfyllt

Email: - Ekki sýnilegt á vefnum

Heimasíða: - Verður að byrja á http://www.

Texti: - Verður að vera útfylltur

Filter - Verður að vera útfylltur - hint upphafsstafirnir mínir, (ess þonn þonn)

Fylgjast með Sjónvarpsgláp
 
Ip adressan þín er 38.107.191.109 og verður hún skráð með færslunni.   Ef IP talan þín finnst ekki, skráist færslan ekki