Upplýsingar um sætuefni og tilvitnun í greinar:
UM SÆTUEFNI::..:.
Til eru nokkrar tegundir af sætuefnum. Má þar nefna Apsartame, Natriumcyclamat og NatríumSakkarín.Sætuefnið Aspartame er búið til úr tveimur tegundum af próteini sem hægt er að finna í matvælum eins og kjöti, fisk, osti, egg og mjólk. Líkaminn meltir sætuefnið á sama hátt og við meltum próteinríkan mat og bætir í raun engu nýju við mataræðið. Dæmi um vöru sem inniheldur Aspartame er NutraSweet og Canderel og er efnið 180-200 sinnum sætara en sucrose.
Samkvæmt grein í British Medical Journal 2004;329:755-756 benda rannsóknir ekki til að aspartame valdi krabbameini, hárlosi, þunglyndi, elliglöpum, hegðunarröskun eða öðrum þáttum sem fullyrt er að efnið valdi á áróðssíðum. Stofnanir eins og Food Standards Agency, European Food Standards Authority og Food and Drug Administration hafa það hlutverk að fylgjast með sambandi milli matvæla og heilsu og gera þeir rannsóknir á efnum þegar vafi um skaðsemi vöru kemur upp.
Þessar stofnanir hafa komist að þeirri niðurstöðu með lífefnafræðilegum, klínískum og rannsóknum á hegðun að lögleg inntaka efnisins á dag er 40 mg í kg á dag er í lagi.(Nema þú sért með phenylketonuria?)
Einnig benda rannsóknir til þess að sætuefni stuðli ekki eins að tannskemmdum eins og sykur gerir og geta sætuefni komið í veg fyrir þyngdaraukningu ef það er borðað í stað sykurs. (heimild tekin af http://www.aspartame.info/aspartame_opinion.html)
Cyclamat er sætuefni sem má meðal annars finna í vörunni Hermesetas. NatriumCyclamatið er 30 sinnum sætara en sykur og er yfirleitt selt í vökvaformi.
Cyclamat var bannað í Bandaríkjunum árið 1970 en Food and Drug Administration hefur samþykkt efnið og er búið að samþykkja það í yfir 50 löndum víðsvegar um heiminn. Rannsóknir á dýrum benda ekki til að efnið valdi krabbameini og hafa meira en 70 rannsóknir á stökkbreytingu verið gerðar og engin af þeim hefur skilað neikvæðri niðurstöðu fyrir neytandann. (heimild tekin af http://www.caloriecontrol.org/cyclam2.html).
Sakkarín er elsta sætuefnið sem til er á markaðnum og má meðal annars finna í vörunni Hermesetas. Það var uppgötvað árið 1879 og var það fljótlega notað af þeim sem þjáðust af sykursýki til að sæta matvæli.
Food & Drug Administration (FDA), World Health Organization, American Cancer Society, American Medical Association, American Dietetic Association and American Diabetes Association hafa öll samþykkt efnið og hafa yfir 30 tilraunir verið gerða á fólki sem benda ekki til að skaðsemi fáist af inntöku efnisins. Greinar hafa meðal annars birst í virtum tímaritum eins og Journal of the American Dietetic Association þar sem talað er um að sakkarín sé öruggt fyrir neytendur.
(Heimild tekin af http://www.saccharin.org/125-years.html).
Ég mæli með að þið skoðið Aspartame.org síðuna þar sem mikið er af lesefni á henni ásamt punktum hvernig gott er að gera sér grein fyrir hvort síðan sem þið lesið sé áreiðanleg eða ekki.





Bloggarinn
Nýjustu kommentin
20 Nýlegar færslur
Á Dagskrá
21 dagar í litla frænda - 01.10.
105 dagar í Jólin.
RSS Vinir
Ég er að lesa
Flickr myndir
Blogg um...
Heilsa og ýmislegt
Smáa letrið