DÆMI UM MAT::..:.

Ég ákvað að taka myndir af því sem ég borða á einum degi. Eða svona dæmi um það, því ég er alltaf að tuða um að ég geri ekkert annað en að borða :) .

En á hverjum degi borða ég:
2 brauðsneiðar(e. bread) (60 g)
KAFFI!!!(e. coffey)
15 g af fitu (e. fat) ( majones, létta )
4 ávexti (e. fruits)
600 g af grænmeti til 1000 g (e. vegetable)
1/2 líter af sykurlausu gosi eða sykurlausri saft (e diet soda)
290 g af kjöti, fisk eða kjúkling (e. meat, fish, chicken)
4 dl af létt ab mjólk eða 2 1/2 dl af sýrðum rjóma eða 500 ml af fjörmjólk. Get reyndað leikið mér að hlutföllunum, en magnið er ca hálfur líter af mjólkurvörum
(mikl products)

svo get ég skipt hinu og þessu út fyrir annað og hitt. Þannig að ég er yfirleitt að fá ost á hverjum degi, borða fjögur egg á viku, og þrisvar í viku fæ ég mér morgunkorn. Svo baka ég mér oft e-h gúmmulaði eins og epli með kanil ofan á og sykurlausri sultu og svo bý ég til svona mulning ofan á úr majonesi, hveiti og undanrennudufti.
Samanlegt gera þetta ca 1500 hitaeiningar og ég er dugleg að finna mér hollar og góðar uppskriftir úr bókum frá DDV og frá DDV-konum
Ég má borða sykurlausar sultur, hveiti, sætuefni, oedke búðing, 100% kakó, essensa, ger og fleira, en í takmörkuðu magni


morgumatur

Morgunmatur (e. breakfast)
1 kaffibolli
100 ml fjörmjólk
smá kanell

30 g ristað brauð
1 tsk sykurlaus sulta
25 g feitur ostur

1/2 greip

hádegismatur

Hádegismatur (e. lunch)
60 g kjúklingur
300 g grænmeti
150 g mangó
25 g feta ostur

30 g brauð (e. bread) ( gleymdi að taka mynd af því)

kaffitími

Kaffitíminn (e. coffey time)
1 gerbolla (ger, majones, sætuefni, vatn, hveiti)
Rommbúðingur
2 tsk hindberja sulta

1 kaffibolli
100 ml fjörmjólk

kvöldmatur

Kvöldmatur (e. dinner)
170 g bajonskinka
300 g grænmeti ( tómatar, sveppir, laukur, sellerírót)
1/2 l kóka kóla lite

kvöldsnakk

Eftirréttur (e. desert)
150 g jarðaber
100 g bláber
125 g sýrður rjómi (10%)

Það er ótrúlegt að það sé aðeins 3 tsk af fitu í þessum máltíðum og enginn viðbættur sykur.

já og hérna er glæsilegi ísskápurinn minn. Svona lítur hann meira og minna út alla daga eftir að DDV lífið hófst :)

ísskápur

Og afþví að ég er algjör ískelling þá keypti ég mér ísvél í Elko á 5000 kr og núna bý ég mér til minn eigin ís. Dæmi innihald íssins sem ég bý til er t.d
Fjörmjólk
Sýrður rjómi
100% kakó
Bragðefni
Sætuefni

eða

Sýrður rjómi
Bláber/jarðaber/appelsínur eða bara e-h ávöxtur
Fjörmjólk
sætuefni

Er svona að prófa mig áfram
Hér er ísinn sem ég gerði :)

Súkkulaðivís

Súkkulaði
Bláberja ís

Bláberja
Jarðaberja ís

Jarðaberja (m/heitri sykurlausri súkkulaði sósu )
Mangó ís

Mango ís með hindberjasósu