HVERNIG FITNUM VIÐ ?::..:.

DÆMI UM HEGÐUN

Þessi atriði eru þýdd upp úr bókinni The Ultimate Weight solution, the seven keys to weight loss freedom. Höfundur Dr. Phil McGraw.

Það kemur fram í bókinni að þessi tafla gengur ekki yfir alla, heldur er þetta einfalt stærðfræðidæmi með hitaeiningar. Auðvitað er þyngdaraukning og léttingur einstaklingsbundinn en einhversstaðar verðum við að leita eftir viðmiðun og þessi tafla sýnir það.

Þessi listi er alls ekki loforð um létting ef maður hættir að borða kleinuhring og snakk, heldur sýnidæmi hvað óhollur matur getur haft mikil áhrif fræðilega séð.

Nr.Hvernig fitnar þú ...KG á ári
1með því að borða út af því að þér líður vel/illa þrisvar sinnum yfir eina viku4
2með því að borða 380 cal of mikið á dag í heila viku18
3með því að borða stóra beyglu í staðinn fyrir litla þrisvar í viku3.5
4með því að borða Bic Mac tvisvar í viku í staðinn fyrir að borða lítill hamborgara4
5með því að borða einn kleinuhring með glassúri á hverjum degi t.d í kaffipásunni í vinnunni9.5
6með því að borða einn bolla af venjulegri mjólk, tvisvar á dag í staðinn fyrir fjörmjólk6
7með því að drekka eina flösku af venjulegu gosi í staðinn fyrir gos án sykurs7
8með því að borða 15-20 flögur á dag7
9með því að borða fimm sinnum í viku venjulegan ís, í staðinn fyrir fitulaust frosið jógúrt4
10með því að fara á matar "fyllerí" tvisvar í viku14-40
11með því að borða skyndibitamat fimm sinnum í viku í staðinn fyrir að borða hollan og góðan heimatilbúinn mat2
12með því að borða fyrir framan sjónvarpið fimm stundir á dag4.5
13með því að borða á kvöldin, fimm þætti á viku9
14með því að drekka þrjá bjóra einu sinni í viku3

NOKKUR ORÐ FRÁ MÉR

Það sem þessi listi gerði fyrir mig var að sýna mér að allt hefur áhrif! Ég reyndi ekki að túlka þessa töflu á annan hátt en hún sýnir og er það að mínu mati að eins og áður var sagt ALLT HEFUR ÁHRIF.

Það sem gjörsamlega sló mig út af laginu var þessi blessaði kleinuhringur!
Það er ekki hægt hægt að neita því að bakkelsi er á boðstólnum á óteljandi stofnunum /fyrirtækjum og fólk borðar það bara af því að það er til staðar.

Auðvitað er það okkar val að fá okkur eða ekki, það er ekki hægt að neita því, en margir geta bara ekki sagt NEI við sætabrauði og detta þar með ofan í það að borða án þess að hugsa. Ég hvet þig lesandi góður já ÞIG að hugsa um hvað þú setur ofan í þig og hvað margt smátt getur orðið risastórt og lagt heilsu þína hreinilega á hliðina.